3 nóv. 2003Fyrsti leikur Keflavíkinga í Evrópukeppni bikarhafa verður á miðvikudaginn kemur í Keflavík. Mótherjar Keflavíkinga verða Ovarense Aerosoles frá Portúgal. Leikurinn hefst kl. 19:15. Í liði Ovarense er leikmaður sem á staðfest heimsmet í að troða bolta í körfu. Það er Bandaríkjamaðurinn Michael Wilson, en hann á heimsmet í að troða í háa körfu. Karfan sem Wilson tróð í var 3,69 metrar á hæð. Þess má geta að venjuleg karfa er 3,05 m. á hæð. Wilson þessi hefur hæst stokkið 51 tommu jafnfætis, sem er 1,30 m. Til samanburðar stökk Michael Jordan mest 44 tommur jafnfætis eða 1,12 m. Michael Wilson lék á sínum tíma með Harlem Globetrotters. Wilson, sem er 1,98 m á hæð, lék háskólabolta með University of Memphis. Leikmannalisti Ovarense er eftirfarandi: Nafn Staða Hæð Pedro Azevedo F 1.93 Mário Gonçalves C 2.00 Herbert Jones G/F 1.94 Joffre Lleal F 1.93 Emiliano Morales C 2.04 Fernando Neves G/F 1.94 Klemensas Patiejunas G 1.87 Pedro Pinho F 2.02 André Pinto F 2.00 Jaime Silva G 1.87 Nuno Tavares G 1.84 John Tomsich C 2.09 Michael Wilson F/C 1.98