13 nóv. 2003Aganefnd KKÍ hefur dæmt Viðar Ö. Hafsteinsson leikmann 1. deildar liðs Hattar í eins leiks bann. Viðar fékk dæmda á sig brottrekstrarvillu í leik Skallagríms og Hattar í 1. deild karla þann 9. nóvember sl. Viðar tekur bannið út í leik Hattar og ÍS í 1. deild karla nk. laugardag.