13 nóv. 2003Sigurður Ingimundarson var í dag ráðinn landsliðsþjálfari karla til næstu tveggja ára. Sigurður Ingimundarson er einn af sigursælustu þjálfurum landsins og hefur náð frábærum árangri með þau lið sem hann hefur þjálfað. KKÍ lýsir mikilli ánægju með að hafa fengið Sigurð til starfa og væntir mikils af störfum hans fyrir sambandið. Sigurður hefur störf strax og mun hann stýra úrvalsliði gegn Catawba háskólanum sem Helgi Magnússon leikur með á milli jóla og nýárs. Sumarið 2004 verða æfingar og æfingaleikir til undirbúnings fyrir riðlakeppni Evrópukeppni landsliða sem hefst í september 2004. Milli jóla og nýárs 2004 er stefnt að æfingaleikjum Sumarið 2005 verða æfingar og æfingaleikir til undirbúnings fyrir riðlakeppni Evrópukeppni landsliða í september. Takist íslenska landsliðinu að sigra í sínum riðli í Evrópukeppninni fer liðið í úrslit gegn sigurvegara úr einhverjum hinna þriggja riðlanna. Leikið verður heima og heiman og fer sigurvegarinn upp í A-riðil. Dregið verður í riðlana í Belgrad 13. desember næstkomandi.