14 nóv. 2003Í októbermánuði var slegið nýtt aðsóknarmet að vef KKÍ þegar alls rúmlega 38.000 heimsóknir voru skráðar á teljarann hjá okkur. Þökkum við kærlega fyrir okkur og vonum að gestir hafi haft gagn og gaman af heimsókn sinni á vefinn. Er ljóst að þessi mikla aðsókn endurspeglar aukinn áhuga á körfuboltanum á Íslandi.