21 nóv. 2003Ólafur Rafnsson formaður KKÍ er staddur í Róm þar sem hann mun um helgina sækja stjórnarfund FIBA-Europe, en sem kunnugt er á Ólafur sæti í stjórninni. Á fundinum verður meðal annars tekin ákvörðun um keppnisstaði í Evrópukeppnum drengja og stúlkna, U-16, sem fram fara næsta sumar, auk þess sem dregið verður í riðla. Ísland mun í fyrsta sinn senda stúlknalandslið í Evrópukeppni og verður það lið fyrst allra kvennaliða frá Íslandi, sama í hvaða aldursflokki, til að taka þátt í Evrópukeppni. Stjórn KKÍ ákvað að senda liðið, sem skipað er stúlkum fæddum 1988 og síðar, í keppnina til að fylgja eftir góðum árangri unglingalandsliðs kvenna á Promotion cup hér heima sl. sumar.