22 nóv. 2003Njarðvíkingar urðu í dag fyrirtækjabikarmeistarar í annað sinn á þremur árum þegar þeir unnu nágranna sína Keflvíkinga, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001803/18030601.htm[v-]90-83[slod-], í úrslitaleik [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001803.htm[v-]Hópbílabikarsins[slod-], í Laugardalshöllinni. Njarðvíkingar áttu bæði upphafs- og lokaorðið í úrslitaleiknum og það dugði ekki Keflvíkingum að vinna 27 mínútur þar á milli með 26 stiga mun, 74-49. Njarðvíkingar, sem komust í 10-0 í upphafi leiks, unnu síðan fjórða leikhlutann 31-9 og þar með leikinn, 90-83. Njarðvík vann fyrirtækjabikarinn í annað sinn á þremur árum. Keflvíkingar eru þá búnir að missa fyrsta titilinn sér úr greipum af þeim þremur sem þeir unnu á síðasta keppnistímabili en þeir unnu í fyrra Íslandsmeistarabikarinn, bikarmeistaratitilinn og fyrirtækjabikarinn. Fyrirtækjameistarar KKÍ 1996-2003: 1996 Keflavík 1997 Keflavík 1998 Keflavík 1999 Tindastóll 2000 Grindavík 2001 Njarðvík 2002 Keflavík 2003 Njarðvík Samtals: Keflavík 4, Njarðvík 2, Tindastóll 1, Grindavík 1. Það var 19 ára gutti úr Njarðvíkingunum, Guðmundur Jónsson, sem gerði útslagið á æsispennandi lokakafla en hann gerði 15 af 23 stigum sínum í síðasta leikhlutanum og dró þá vagninn en Guðmundur skoraði 11 stigum fleiri í fjórða leikhlutanum heldur en Brandon Woudstra (4) og Brenton Birmingham (0) til samans. Brenton gerði reyndar útslagið í lokin þegar hann varði þriggja stiga skot Fals Harðarsonar í stöðunni, 85-83, náði sjálfur frákastinu og sendi á Guðmund Jónsson frían í hraðaupphlaupi sem gulltryggði sigurinn. Stigaskor leikmanna liðanna í fjórða leikhluta: Njarðvík 31 Guðmundur Jónsson 15 Brandon Woudstra 4 Halldór Rúnar Karlsson 4 Páll Kristinsson 4 Friðrik Stefánsson 2 Ólafur Aron Ingvason 2 Keflavík 9 Nick Bradford 4 Gunnar Einarsson 2 Falur Harðarson 2 Magnús Þór Gunnarsson 1 Tölfræði liðanna í fjórða leikhluta: Njarðvík Skotnýting: 21/11 (52%) 3ja stiga skotnýting: 5/2 (40%) Vítanýting:11/7 (64%) Fráköst:20 (8 í sókn) Tapaðir boltar: 2 Stoðsendingar: 8 Varin skot: 6 Keflavík Skotnýting: 19/3 (16%) 3ja stiga skotnýting: 7/1 (14%) Vítanýting: 6/2 (33%) Fráköst: 9 (5 í sókn) Tapaðir boltar: 4 Varin skot: 3 Stoðsendingar: 1 Guðmundur Jónsson skoraði 23 stig á 28 mínútum og nýtti 8 af 13 skotum sínum en eins var Friðrik Stefánsson mjög sterkur undir körfunni (17 stig, 14 fráköst, 5 varin skot) og Brandon Woudstra skilaði sínu með nánast sóknarleik liðsins á sínum öxlum allan tímann. Brandon spilaði allan leikinn og var með 21 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar og það gerði honum lífið erfitt að bæði Páll Kristinsson og Brenton Birmingham hittu afar illa (gerðu 11 stig og hittu aðeins úr 3 af 22 skotum saman) en þeir tóku saman 21 fráköst og spiluðu sterka vörn. Hjá Keflavík voru þeir Derrick Allen (23 stig, 10 fráköst, 5 varin) og Nick Bradford (20, stig, 9 fráköst, 6 stoðsendingar) í aðalhlutverkum og þá skilaði fyrirliðinn Gunnar Einarsson vissulega sínu (17 stig, 9 fráköst). Aðalskyttur liðsins brugðust hinsvegar og liðið misnotaði meðal annars 15 af 16 þriggja stiga skotum sínum í seinni hálfleiknum. Það munaði líka mikið um að missa Derrick Allen útaf með 5 villur þegar 6:34 voru eftir en liðið var þá sex stigum yfir, 76-70. Barátta og sigurvilji Njarðvíkinga bar þá hreinlega ofurliði í lokin en Njarðvíkingar tóku 20 af 29 fráköstum í boði í síðasta leikhlutanum á sama tíma og aðeins 3 af 19 skotum Keflvíkinga skiluðu sér rétta leið ofan í körfuna. Njarðvíkingar vörðu 14 skot frá Keflvíkingum í úrslitaleiknum og alls 29 skot í leikjunum tveimur um helgina. Egill Jónasson varði alls 12 skot í leikjunum tveimur og Friðrik Stefánsson varði 8 til viðbótar. Þessir vörðu skot fyrir Njarðvík í úrslitaleiknum: Friðrik Stefánsson 5 Egill Jónasson 3 Brenton Birmingham 2 Guðmundur Jónsson 2 Páll Kristinsson 1 Brandon Woudstra 1