24 nóv. 2003Jakob Sigurðarson var stigahæstur í liði Birmingham Southern College í opnunarleik Big South-háskóladeildarinnar sl. föstudag. Jakob var með 17 stig í 50-70 tapleik gegn Kansas State á útivelli. Helgi Magnússon var stigahæstur í báðum leikjum Catawba College á móti í Pennsilvaniu um helgina með 15 og 24 stig. Jakob hitti úr 7 af 14 skotum sínum og 3 af 8 utan 3ja stiga línunnar. Hann var einnig með 4 stoðsendingar á 35 mínútum sínum í leiknum. Í kvöld, mánudagskvöld, er fyrsti heimaleikur BSC er Alabama State sækir þá heim. Catawba tók þátt í móti í Shippensburg í Pennsilvaniu. Á föstudagkvöld tapaði skólinn fyrir fyrir Shippensburg 60-76 og Helgi gerði 15 stig. Á laugardag sigraði skólinn síðan West Liberty State 106-70. Þá var Helgi með 24 stig og hitti ma. úr 6 af 7 3ja stiga skotum sínum. Eins og kunnugt er kemur Catawba skólaliðið til Íslands á milli jóla og nýárs og leikur tvo leiki gegn úrvalsliðum sem Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari velur.