12 des. 2003Lokaleikur 10. umferðar Intersport-deildarinnar fer fram í Grindavík í kvöld er heimamenn taka á móti ÍR. Grindavík er tapalaust í efsta sæti deildarinnar, en ÍR-ingar sitja á botni deildarinnar með aðeins 1 sigur úr fyrstu níu leikjunum. Þess má geta að ÍR lagði Grindavík í leik liðanna í Hópbílabikarnum í Seljaskóla á dögunum og er það annar af tveimur tapleikjum UMFG í vetur. Hinn var undanúrslitaleikur sömu keppni gegn Njarðvík. Þessi lið mætast síðan aftur á sunnudaginn í Seljaskóla í bikarkeppni KKÍ & Lýsingar, en 16-liða úrslit keppninnar fara fram um helgina. Leikirnir verða ýmist á morgun eða á sunnudag.