12 des. 2003Hlynur Bæringsson leikmaður Snæfells hefur verið dæmdur í eins leiks bann af aganefnd KKÍ. Hlynur missir því af leik KR b og Snæfells í bikarkeppni KKÍ & Lýsingar á morgun. Hlynur fékk dæmda á sig brottrekstrarvillu í leik UMFN og Snæfells þann 4. þessa mánaðar fyrir óprúðmannlega framkomu.