15 des. 2003Jóhann Ólafsson unglingalandsliðsmaður úr Njarðvík, sem leikur nú í Centralia-miðskólanum í Seattle í Washington-fylki, átti sannkallaðan stórleik á föstudaginn í leik gegn Tumwater-miðskólanum. Leikurinn var í svokallaðri Pacific-9 deild miðskólakeppninnar. Jóhann gerði 35 stig í 70-50 sigri Centraila. Þetta var fyrsti leikur skólans í deildarkeppninni, en alls hefur skólinn sigrað í þremur leikjum og tapað einum á tímabilinu. Jóhann var einnig með 7 fráköst og 5 stoðsendingar. Skotnýting hans var 13 af 17 utan af velli og 9 af 11 frá vítalínunni. "Jóhann átti mjög góðan leik, hann er óeigingjarn leikmaður og hefur reyndar unun af því að gefa boltann," sagði Ron Brown þjálfari Centralia í viðtali við dagblaðið "The Cronicle" eftir leikinn. Framundan eru tveir erfiðir leikir hjá skólanum í þessari viku.