16 des. 2003Breiðabliksvefurinn hefur verið valinn körfuboltavefur nóvember mánaðar. Eggert Baldvinsson formaður körfuknattleiksdeildar Breiðabliks fékk bikar þessu til viðurkenningar afhentan í dag. Breiðabliksvefurinn hefur verið í mikilli sókn að undanförnu. Fréttir hafa verið örar og yngri flokka starfinu hafa verið gerð góð skil. Þá hafa Blikar tekið uppá þeirri nýbreytni að sýna heimaleiki sína í beinni útsendingu á vefnum sínum. Einnig er hægt að skoða þar endursýningu af síðasta heimaleik. kki.is óska Breiðabliksmönnum til hamingju með viðurkenninguna og góðan vef.