16 des. 2003Dregið verður í 8-liða úrslit í bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í karla og kvenna flokki á fimmtudaginn kl. 15:00. Fyrir liggur hvaða lið verða í pottinum í karlaflokki, en enn er ólokið þremur leikjum í 16-liða úrslitum kvenna. Þeir leikir fara fram þrjú næstu kvöld. Þau félög sem þegar hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum karla eru: Keflavík, UMFN, UMFG, Hamar, Tindastóll, Haukar, Fjölnir og Snæfell. Í kvennaflokki hafa UMFN, Haukar og ÍS unnið sér sæti í 8-liða úrslitum auk KR og Tindstóls sem sátu hjá í 16-liða úrslitum. Ólokið er eftirtöldum leikjum: ÍR - Keflavík, Ármann/Þróttur - UMFG, Breiðablik - Þór Ak.