24 des. 2003Keppnistímabilið í vetur hefur verið afar viðburðarríkt. Sú staðreynd að síðustu leikir eru leiknir alveg fram undir hátíðardagana endurspeglar þétta dagskrá í íslenskum körfuknattleik í öllum aldurs- og keppnisflokkum. Til viðbótar hafa nú komið afar skemmtilegir og spennandi leikir Keflavíkurliðsins í Evrópukeppninni, sem að nokkru hafa létt okkur körfuknattleiksáhugamönnum óbærilega bið eftir því að fá að sjá alþjóðlega leiki hér á landi vegna ótímabærra breytinga á verkefnum landsliðs okkar. Framundan eru hinsvegar fyrstu leikir nýráðins landsliðsþjálfara, Sigurðar Ingimundarsonar, á milli jóla og nýárs gegn Catawba háskólanum. Sigurður hefur með sama hætti og forveri sinn sýnt kjark með því að gefa ungum upprennandi leikmönnum tækifæri á að spreyta sig í landsliðsbúningi. Verður án efa spennandi að fylgjast með leikjunum tveimur í Grafarvogi og Þorlákshöfn, og efast ég ekki um að íslenskir körfuknattleiksáhugamenn muni fjölmenna á leikina enda má segja að leikirnir séu hin prýðilegasta fjölskylduskemmtun um jóladagana. Ég vil fyrir hönd stjórnar og starfsmanna Körfuknattleikssambands Íslands senda ykkur öllum óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. Við þökkum fyrir ánægjuleg samskipti við alla - hvort sem um er að ræða aðila innan eða utan okkar hreyfingar. Íslandsmótið í körfuknattleiks hefst svo strax fyrstu helgina á nýju ári með meira en þrjátíu kappleikjum. Við sjáumst vonandi á vellinum á nýja árinu. Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ.