2 jan. 2004Fjórir leikmenn Intersportdeildar karla hafa náð tvöfaldri þrennu það sem af er í vetur en það er að ná yfir tíu í þremur af þeim fimm tölfræðiþáttum sem eru teknir saman, stigum, fráköst, stoðsendingum, stolnum boltum eða vörðum skotum.. Aðeins einn Íslendingur er á þessum lista, KR-ingurinn Magni Hafsteinsson, en hinir eru Clifton Cook hjá Tindastóli, Nick Bradford hjá Keflavík og Jesper Sörensen hjá KR. Magni setti úrvalsdeildarmet í vörðum skotum (11) þegar að hann náði sinni þrennu gegn Þór úr Þorlákshöfn 27. nóvember. Haukamaðurinn Michael Manciel er hisnvgar sá leikmaður sem oftast hefur náð yfir 10 í tveimur tölfræðiþáttum, það er náð tvennu. Manciel náði tvennu í níu af 11 leikjum fyrri hluta Intersportdeildarinar. Tvölfaldar þrennur leikmanna í vetur: Clifton Cook Tindastóll gegn Haukum (h) 23.10.03 10 frák. - 15 stoðs. - 21 stig Nick Bradford Keflavík gegn Breiðablik (h) 24.10.03 11 stoðs. - 10 stoðs. - 17 stig Jesper W Sörensen KR gegn Haukum (h) 18.11.03 10 frák.- 12 stoðs. - 14 stig Magni Hafsteinsson KR gegn Hamar (h) 27.11.03 11 frák.- 11 varin - 13 stig Flestar tvennur: Michael Manciel Haukar 9 Faheem Nelson Hamar 8 Mirko Virijevic Breiðablik 8 Nick Boyd Tindastóll 8 Hlynur E Bæringsson Snæfell 7 Derrick Allen Keflavík 7 Daniel Trammel Grindavík 7 Leon Brisport Þór Þ. 7 Friðrik E Stefánsson Njarðvík 6 Chris Woods KR 5 Adam Spanich KFÍ 5 Raymond Robins Þór Þ. 5 Nick Bradford Keflavík 4 Guðmundur L Bragason Grindavík 4 Páll Kristinsson Njarðvík 4 [v+] http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001800.htm[v-]Intersportdeild karla[slod-] hefst á nýjan leik með heilli umferð sunnudaginn 4. janúar. Hér á KKÍ-síðunni má nú finna alla hugsanlega topplista yfir bestu (og líka verstu) frammistöðu leikmanna deildarinnar í fyrri hlutanum. Þennan topplista sem og fleiri má finna í ítarlegri samantekt sem er undir greinum á KKÍ-síðunni og hægri er fara beint inn á [v+] http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=178[v-]hér[slod-]. Næstu daga munu birtast hér á KKÍ-síðunni suttar féttir úr tölfræði deildarinnar það sem af er en hvergi er tekin saman eins umfangsmikil tölfræði innan sérsambanda ÍSÍ eins og hjá Körfuboltasambandinu.