2 jan. 2004Helgi Jónas Guðfinnsson, leikstjórnandi Grindavíkur í Intersportdeild karla og Erla Reynisdóttir, leikstjórnandi Keflavíkur í 1. deild kvenna hafa treyst mest allra leikmanna deildarinnar á vítalínuna það sem af er vetrar. Bæði hafa þau talist til bestu langskyttna deildanna til þessa en hvorugu hefur gengið vel að finna körfuna í vetur. Þess í stað eru þau þeir leikmenn sem skora hlutfallslega mest af stigum sínum á vítalínunni. Helgi Jónas Guðfinnsson hefur verið að glíma við erfið meiðsli í allan vetur og af þeim sökum aðeins spilað fjóra leiki. Í þessum fjórum leikjum hefur hann misnotaðað 19af 25 þriggja stiga sktoum sínum en 42,3% stiga hans (22 af 52) hafa komið út vítum. Erla var fyrir tímabilið besta þriggja stiga skytta sögunnar nýtingarlega séð en í tíu leikjum vetrarins hefur hún misnotaða 19 af 23 þriggja stiga sktoum sínum en þess í stað hafa 48,3% stiga hennar (28 af 58) verið skoruð á vítalínunni. Hæsta hlutfall stiga skoruð á vítalínunni í 1. deild kvenna: Lágmörk: 8 leikir eða 50 mínútur 1 Erla Reynisdóttir Keflavík 48,3 2 Lilja Oddsdóttir KR 39,6 3 Anna M Sveinsdóttir Keflavík 31,3 4 Guðrún Ó Karlsdóttir Njarðvík 28,0 5 Andrea Gaines Njarðvík 27,9 6 Eplunus Brooks ÍR 27,2 7 Ragnhildur E Guðmund ÍR 25,9 8 Eva M Grétarsdóttir ÍR 25,7 9 Hildur Sigurðardótti KR 25,4 10 Katie Wolfe KR 24,2 Hæsta hlutfall stiga skoruð á vítalínunni í Intersportdeildinni: Lágmörk: 8 leikir eða 50 mínútur 1 Halldór Ö Halldórsso Keflavík 44,4 2 Vilhjálmur S Steinar Haukar 42,9 3 Helgi J Guðfinnsson Grindavík 42,3 4 Magnús Sigurðsson Þór Þ. 39,1 5 Ólafur A Ingvason Njarðvík 37,5 6 Sigurður Þ Einarsson Haukar 35,9 7 Hlynur E Bæringsson Snæfell 33,3 8 Eiríkur S Önundarson ÍR 33,1 9 Friðrik E Stefánsson Njarðvík 28,5 10 Kevin Grandberg ÍR 28,1 [v+] http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001800.htm[v-]Intersportdeild karla[slod-] hefst á nýjan leik með heilli umferð sunnudaginn 4. janúar. Hér á KKÍ-síðunni má nú finna alla hugsanlega topplista yfir bestu (og líka verstu) frammistöðu leikmanna deildarinnar í fyrri hlutanum [v+] http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001801.htm [v-] 1. deild kvenna[slod-] hefst á nýjan leik með heilli umferð laugardaginn 3. janúar. Hér á KKÍ-síðunni má nú finna alla hugsanlega topplista yfir bestu (og verstu) frammistöðu leikmanna deildarinnar í fyrri hlutanum. Þessa topplista sem og fleiri má finna í ítarlegri samantekt sem er undir greinum á KKÍ-síðunni og hægri er fara beint inn á [v+] http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=177[v-]hér[slod-] og [v+] http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=178[v-]hér[slod-]. Næstu daga munu birtast hér á KKÍ-síðunni suttar féttir úr tölfræði deildanna það sem af er en hvergi er tekin saman eins umfangsmikil tölfræði innan sérsambanda ÍSÍ eins og hjá Körfuboltasambandinu.