6 jan. 2004Morten Szmiedowicz fyrrum unglingalandsliðsmaður og leikmaður UMFG lék tvo leiki með háskólaliði sínu, Lakeland í Dubuque í Iowa á milli jóla og nýars. Lakeland tapaði fyrri leiknum og vann þann síðari og hefur nú sigrað í 5 leikjun en tapað 7 í vetur. Lakeland tapaði fyrir Siena Hights 69-80. Morten var með 11 stig og 10 fráköst á 32 mínútum. Síðan vann Lakeland sigur á Purdue-North Central 83-75. Í þeim leik var Morten með 3 stig og 4 fráköst á 14 mínútum. Morten hefur verið í byrjunarliðinu í 10 af 12 leikjum í vetur og er með 9,4 stig og 5,3 fráköst að meðaltali í leik. Þá er hann með mjög góða nýtingu í skotum sínum, 50,8% í 2ja stiga skotum, 80% í 3ja stiga skotum (4/5) og 80,4% í vítum. mt: Morten tekur skot að körfu í mótinu á milli jóla og nýárs.