6 jan. 2004Öll félögin í 1. deild kvenna ásamt Haukum úr 2. deild hafa ákveðið að efna til úrvalsleiks kvenna miðvikudaginn 14. janúar í Seljaskóla, en leikurinn verður með svipuðu sniði og Stjörnuleikur KKÍ fyrir karlana. Kosið verður á netinu í tvö lið: Reykjavík (ÍS, KR og ÍR) og Suðurliðin (Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Haukar). Allir leikmenn þessarra liða eru gjaldgengir í atkvæðagreiðslunni. Kosnir verða 10 leikmenn í hvort lið og síðan mega þjálfarar velja tvo leikmenn til viðbótar. Þjálfari Reykjavíkurliðsins verður Ívar Ásgrímsson og Suðurliðsins Pétur Guðmundsson. Í hálfleik verður skotkeppni ofl. Kosning í liðin hefst í fyrramálið á heimasíðum félaganna og stendur fram að miðnætti á mánudagskvöld 12. janúar. Liðin verða síðan tilkynnt þriðjudaginn 13.janúar.