7 jan. 2004Þjálfarar liðanna sem taka þátt í Stjörnuleiknum, Friðrik Ingi Rúnarsson með STAKKAVÍKUR-liðið úr suðri og Bárður Eyþórsson með ESSÓ-liðið úr norðri, hafa valið sjö leikmenn til viðbótar við þá sem netverjar völdu hér á kki.is. Leikurinn fer sem kunnugt er fram nk. laugardag í íþróttahúsi Seljaskóla og hefst hann kl. 16:00. Ókeypis aðgangur er á leikinn. Þjálfari STAKKAVÍKUR-liðsins, Friðrik Ingi Rúnarsson hefur valið eftirtalda leikmenn: Darrel Lewis, Grindavík Brenton Birmingham, Njarðvík Mike Manciel, Haukum Lárus Jónsson, Hamar Guðmundur Jónsson, Njarðvík Þorleifur Ólafsson Grindavík Sævar Haraldsson, Haukar Í byrjunarliðið voru valdir: Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Breiðablik Brandon Woudstra, Njarðvík Páll Axel Vilbergsson, Grindavík Páll Kristinsson, Njarðvík Friðrik Stefánsson, Njarðvík Bárður Eyþórsson þjálfari ESSÓ-liðsins hefur valið eftirtalda sjö leikmenn í lið sitt: Axel Kárason, Tindastóll Nick Boyd, Tindastóll Steinar Kaldal, KR Skarphéðinn Ingason, KR Lýður Vignisson, Snæfell Jeb Ivey , KFÍ Kevin Grandberg, ÍR Í byrjunarliðið voru valdir: Sigurður Á. Þorvaldsson, Snæfell Hlynur E. Bæringsson, Snæfell Clifton Cook, Tindastól Eiríkur Önundarson, ÍR Magni Hafsteinsson, KR Val á leikmönnum í þriggja stiga skotkeppni og troðkeppni stendur yfir og verður það val tilkynnt síðar.