12 jan. 2004Friðrik Stefánsson úr UMFN var valinn besti leikmaður Stjörnuleiks KKÍ sl. laugardag. Friðrik skoraði 18 stig og tók 14 fráköst fyrir Stakkavíkurliðið úr suðri sem sigraði í leiknum [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001812/18120101.htm[v-]136-133[slod-]. Stakkavíkur-liðið náði góðri forystu í fyrsta leikhluta 44-17, en Essó-liðið úr norðri vann jafnt og þétt upp muninn. Staðan var 64-52 í hálfleik og 101-88 eftir þriðja leikhluta. Minnstu munaði að Essó-liðið næði að jafna leikinn undir lokin.