13 jan. 2004Franska körfuknattleikssambandið tilkynnti í gær að það hefði sótt formlega um að fá að halda heimameistarakeppnina árið 2010. Sendinefnd á vegum FIBA mun heimsækja Frakkland í september og síðan verður tekin ákvörðun um keppnisstað í nóvember. Mikill áhugi er fyrir körfubolta í Frakklandi og hefur vegur íþróttarinnar aukist stórlega eftir að Tony Parker hóf að leika með San Antonio Spurs í NBA-deildinni. Parker varð fyrsti Frakkinn til að vinna NBA-titil þegar SA Spurs sigraði í NBA-deildinni sl. vor og skemmst er að minnast frétta af því að hann hafi verið valinn íþróttamaður ársins í Frakklandi. Gengi franska landsliðsins hefur verið upp og ofan í seinni tíð. Liðið vann silfurverðlaun á síðustu Ólympíuleiknum, en mistókst að vinna sér sæti á leikunum sem fara fram í Aþenu í sumar. Næsta heimsmeistarakeppni í körfubolta mun fara fram í Japan árið 2006.