14 jan. 2004Hið árlega KEA-skyrmót Breiðabliks verður haldið í Smáranum helgina 31. janúar - 1. febrúar fyrir stráka og stelpur 11 ára og yngri (fædd ´92 og síðar). Þetta er í sjöunda sinn sem mótið er haldið og hefur það fest sig í sessi meðal þriggja stóru mótanna fyrir yngstu keppendurna. Allir keppendur fá bol og verðlaunapening. Öll liðin leika að minnsta kosti 3 leiki og verður leiktíminn 2x12 mínútur með gangandi klukku. Ekki verða stig talin á mótinu nema hjá strákum og stelpum í minnibolta 11 ára. Fjölmargir leikir verða sýndir beint á netinu sem er skemmtileg nýbreytni og geta allir fylgst með leikjunum á slóðinni http://asp.internet.is/blikar/kea/ Ekkert kostar fyrir félagið sjálft en verð á hvern keppanda er kr. 1200,- Skráning og frekari upplýsingar eru í netfanginu ggrondal@hotmail.com eða hjá Gylfa í síma 699 8972 fyrir 24. janúar næstkomandi.