21 jan. 2004Íslendingar eru víða að gera garðinn frægan í körfunni utan landsteinanna. [v+]http://www.sport.is/default.asp?id=429[v-]Sport.is[slod-] segir frá því í körfuboltafréttum að Sauðkrækingurinn Ísak Einarsson hafi leikið sinn fyrsta leik í nokkurn tíma með Álaborg í dönsku 1. deildinni, þegar liðið heimsótti SISU til Kaupmannahafnar á sunnudaginn. SISU sigraði með 17 stigum, 104-87 og má sjá greinileg batamerki á leik Álaborgarliðsins. Liðið hefur fengið senegalskan leikmann til liðs við sig, Mohamed Niang. Ísak átti mjög góðan leik, skoraði 19 stig á þeim 37 mínútum sem hann lék, þar af 5 þriggja stigakörfur úr 8 tilraunum. Hann tók 2 fráköst, stal 3 boltum en tapaði 1 bolta, segir í fréttinni á Sportid.is. Á heimasíðu Álaborgarliðsins segir einnig: "Það mátti greinilega sjá að endurkoma Ísaks Einarssonar var mikil lyftistöng og gaf liðinu þá þyngd í varnarleiknum sem til þurfti. Áður en Ísak fór til Danmerkur hafði hann leikið 6 tímabil í úrvalsdeildinni; 4 með Tindastóli og 2 með Breiðabliki.