23 jan. 2004Eftirlitsnefnd KKÍ hefur úrskurðað að Tindastóll hafi farið fram úr launaþaki því sem sett var fyrir Intersportdeildina nú í sumar. Úrskurðurinn var kynntur forsvarsmönnum Tindastóls í gær. Hann felur það í sér að félagið hefur ekki heimild til að nota einn af þeim leikmönnum sem þiggur laun hjá deildinni í leikjum sínum. Jafnframt hefur félagið verið sektað um kr. 100.000 vegna brotsins. Eftirlitsnefndin hafði heimild til að draga allt að 4 stig af félaginu í Intersportdeildinni. Ákveðið var að nýta ekki þá heimild, enda hefur félagið skilað inn öllum umbeðnum gögnum, sýnt samstarfsvilja og ekki reynt á neinn hátt að leyna greiðslum. Ástæða þess að félagið fór yfir launaþakið er misskilningur forsvarsmanna þess á því hvað felst í reglugerðinni um launaþak. Félaginu hefur verið gefinn viku frestur til að gera nefndinni grein fyrir þeim aðgerðum sem það hyggst grípa til þannig að það verði undir launaþakinu