30 jan. 2004Á fundi aganefndar KKÍ í vikunni voru kærur á hendur fimm leikmönnum teknar fyrir. Úrskurðurinn í öllum tilfellum var eins leiks bann. Þeir sem hlutu leikbann voru Einar Hannesson Breiðabliki b vegna óprúðmannalegrar framkomu, Þorsteinn Kristinsson og Einar Bjarkason Keflavík b vegna sérlega grófs leiks eða ofbeldis, Helgi Arason drengjaflokki Hauka vegna sérlega grófs leiks eða ofboldis og Sigurður Björnsson 11. flokk Stjörnunnar vegna óhæfilegra mótmæla og mótþróa við dómara. Bönnin taka gildi á hádegi í dag, föstudag.