2 feb. 2004Nýtt met var sett í fjölda heimsókna á kki.is nú í janúar þegar fjöldinn fór í 40.488. Þetta er í fyrsta skipti í sögu vefjarins sem fjöldi heimsókna fer yfir 40 þúsund. Heimsóknum á vefinn hefur fjögað mjög að undanförnu og til samanburðar má geta þess að í janúar 2003 var heimasóknafjöldinn 28.518. Þá var hæsta vika í sögu vefjarins þriðja vika janúar sl. með 9.760 heimsóknir. Mánudagar eru sem fyrr vinsælustu dagarnir á vefnum og flestir skoða vefinn í milli 12-13 á daginn. Næstur kemur tíminn á milli 13-14 á daginn.