2 feb. 2004Helgi Magnússon var stigahæstur hjá Catawba College í 71-69 sigri á Carson-Newman á laugardaginn. Helgi skoraði 15 stog og tók 6 fráköst. Catawba er nú með 7 sigra og 13 töp í það heila og 2 sigra og 5 töp í South Atlantic deild 2. deildar NCAA. Birmingham Southern vann mikilvægan sigur á Coastal Carolina, 76-68 á laugardaginn. Jakob Sigurðarson var stigahæstur hjá BSC með 16 stig. Skólinn er sem fyrr eftur í Big South deild 1. deildar NCAA með 8 sigra og 2 töp í deildinni, en 15-5 í það heila. Jakob var fyrir leiki helgarinnar í 3. sæti yfir alla 1. deildar skóla í Bandaríkjunum í vítanýtingu. Samkvæmt list sem birtur er í dagblaðinu USA Today er Jakob með 93,3% nýtingu 60/56. Í fyrsta sæti er Blake Ahearn Sms, með 98,6% nýtingu 71/70 og J.J. Redick úr Duke háskóla er í öðru sæti með 97,1% nýtingu 69/67. Miðað er við 34 skot hitt til að komast á listann. mt: Jakob er á meðal bestu vítaskyttna bandarísku háskóladeildarinnar með sérlega glæsilega nýtingu.