4 feb. 2004Enn er möguleiki á að taka þátt í leik Lýsingar í tengslum við bikarúrslitaleikina á laugardaginn. Eina sem þarf að gera er að smella á Lýsingarlógóið á heimasíðu KKÍ og svara laufléttri spurningu. Tveir heppnir þátttakendur verða dregnir út og fá tækifæri til að setja niður eitt þriggja stiga skot í hálfleik í bikarúrslitaleik Keflavíkur og Njarðvíkur. Heppnist skotið fá viðkomandi kr. 100.000 frá Lýsingu. Það er því til mikils að vinna og ættu því allir þeir sem telja sig geta sett niður þrist að taka þátt í leiknum.