5 feb. 2004England hefur átt afburða körfuknattleiksmenn í gegnum tíðina og nægir þar að nefna John Amaechi, Roger Huggins, Steve Bucknall og Andy Betts. Í dag eru nokkrir enskir strákar að gera það gott með toppliðum í bandaríska háskólaboltanum. Luol Deng, sem fæddur er í Súdan en fluttist sem strákur til Englands, skoraði 22 stig fyrir Duke-háskóla um síðustu helgi. Duke, sem er í efsta sæti styrkleikalista bandarísku 1. deildar skólanna (NCAA Div.1), vann Georgie Teck 82-74, Olu Babalola, sem kom til Íslands fyrir nokkrum árum með ACC Allstar og tók þátt í móti á vegum ÍT-ferða, skoraði 14 stig og tók 5 fráköst fyrir Clemson í 81-72 sigri á North Carolina (12. sæti). Richard Midgley skoraði 17 stig í sigri California á erkifjendunum í PAC 10-deildinni, Oregon State, 88-74. Þá gerði Kelenna Azubuike 12 stig og tók 7 fráköst fyrir Kentucky (sem er í 7. sæti styrkleikalistans) sem tapaði 60-66 fyrir Vanderbilt. John Amaechi hefur leikið nokkur ár í NBA-deildinni og var á sínum tíma tekjuhæsti íþróttamaður Bretlands. Steve Bucknall var í læri hjá Dean Smith í North Carolina og lék síðan með félagsliðum í Evrópu. Huggins lék með háskólaliði á Hawaii og síðan með liðum á Englandi og Belgíu. Bett gekk í Long Beach State, en er nú að gera góða hluti með Tau Caramica á Spáni. Mt: Olu Bablola leikur nú með Clemson háskóla.