20 feb. 2004Damon Johnson skrifaði fyrir nokkru undir samning við lið Murcia sem leikur í efstu deildinni á Spáni. Damon hafði leikið með Caceras í næst efstu deild Spánar nú í vetur og hafði staðið sig mjög vel þar. Hinsvegar hafði félagið verið í vandræðum með að standa við launagreiðslur til Damons og því tók hann boði Murcia um að leika með þeim út tímabilið. Spænska deildin er ein sú sterkasta í heimi í dag og því mikið afrek hjá Damon að komast að þar. Murcia er í neðsta sæti spænsku deildarinnar en vonandi verður koma Damons til liðsins til þess að hagur þess vænki í náinni framtíð.