24 feb. 2004Um síðastliðna helgi fór fram öldungamót í körfuknattleik í Íþróttahöllinni. Snobbarar báru sigur úr býtum í karlaflokki en heldri dömur úr ÍS sigruðu í kvennaflokki en þetta var í fyrsta sinn sem konur taka þátt. Alls tóku fjórtan lið alls staðar að af landinu þátt á mótinu sem þótti takast með miklum ágætum. Umrædd keppni var haldin í fyrsta sinn árið 2000 og hafa Snobbararnir ætíð borið sigur úr býtum enda liðið skipað mörgum fyrrum leikmönnum meistaraflokks Þórs í körfuknattleik. Í úrslitaleiknum að þessu sinni mættu Snobbarar og A-liði Skotfélags Akureyrar og leit lengi vel út fyrir að nýjir meistarar yrðu krýndir. Í seinni hálfleik náðu þó Snobbararnir að rétta úr kútnum og innbyrða sætan sigur. Körfuboltaliðin sem þátt tóku í mótinu komu víðsvegar af og hefur þeim fjölgað frá ári til árs. Liðin í karlaflokki voru A og B-lið Skotfélags Akureyrar, Synir lands og vona, Snobbarar, Dvergar, Kempurnar, 59 (stundakennarar og læknar), Sandgerði, Molduxar og Höttur. Í kvennaflokki tóku þátt auk sigurvegaranna úr ÍS, Trillur, Rauðhettur og Valkyrjur. Körfuboltabræðurnir, Eiríkur og Jóhann Sigurðssynir, sem eiga frumkvæðið að mótinu, voru heiðraðir í mótslok og þeim þakkað þetta frábæra framtak. Að verðlaunaafhendingu lokinni var svo haldið í óvissuferð og loks var dansað á Oddvitanum fram á rauðanótt. Ætla má að u. þ. b. hundrað manns hafi komið til Akureyrar í tengslum við mótið. Þessi frétt er af [v+]http://www.thorsport.is/thor/default.asp?grein=25[v-]vef Þórsara[slod-].