27 feb. 2004Í kvöld líkur 20. umferð Intersport-deildarinnar með leik UMFG og Hamars og á sunnudag og mánudag fer fram 21. og næsta síðasta umferð deildarinnar. Snæfell getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í deildinni á sunnudaginn er liðið tekur á móti Haukum í Stykkishólmi. Aðrir leikir á sunnudagskvöld eru Haukar - KR, ÍR - UMFG, UMFN - KFÍ og Breiðablik - Tindastóll. Keflavík tekur síðan í móti Þór Þ. á mánudagskvöld. Eftir leiki gærkvöldsins er ljóst að Þór Þ. og Breiðablik verða að vinna báði þá leiki sem þau eiga eftir og treysta þar að auki á að KFÍ tapi sínum leikjum, til að bjrgar sér frá falli. Þó er ljóst að bæði félögin geta ekki bjargað sér. ÍR getur hvorki fallið né komist í úrslitakeppnina og því er ljóst hvaða átta félög skipa hana. Aðeins er óljóst hverjir mæta hverjum. Lokaumferð deildarinnar verður síðan fimmtudaginn 4. mars. Í 1. deild karla getur Skallagrímur tryggt sér deildarmeistaratitil með sigri á Stjörnunni í kvöld. Leikurinn fer fram í Borgarnesi kl. 19:15. Á sama tíma mætast Þór Ak. og Valur í Höllinni á Akureyri, en Valsmenn heygja nú harða baráttu við Fjölni um annað sætið í deildinni. Ármann/Þróttur hefur þegar tryggt sér fjórða sæti deildarinnar. Á laugardag mætast síðan Höttur og ÍG kl. 15:00 og Selfoss og Fjölnir kl. 16:00. Keflavík hefur þegar tryggt sér sigur í 1. deild kvenna og fær bikarinn afhentan í næsta heimaleik sínum. Aðeins einn leikur er í 1. deild kvenna um helgina, en UMFG mætir ÍR, sem þegar er fallið í 2. deild, kl. 17:15 á morgun í Grindavík. Auk þeirra deildarleikja sem taldir hafa verið upp eru fjölmargir leikir á dagskrá í 2. deild karla og kvenna um helgina. Síðast en ekki síst eru þrettán fjölliðamót yngri flokka á dagskrá. Í 11. flokki karla er leikið á Hlíðarenda og Seljaskóla í Reykjavík og í Vogum á Vatnsleysuströnd. í 8. flokki karla eru mót í Keflavík, Hafnarfirði, Grindavík og Vogum. í 9. flokki kvenna leikið í Njarðvík, Hafnarfirði og Hveragerði og í minnibolta kvenna fara fram mót á Flúðum, í Hagaskóli í Reykjavík og í Keflavík. Sem sagt fjörug körfuboltahelgi framundan. Góða skemmtun!