5 mar. 2004Um 110 manns mættu á 82. héraðsþing HSK sem haldið var í fyrsta sinn í Þykkvabæ sl. laugardag. Nutu fulltrúar gestrisni félaga úr Hestamannafélaginu Geysi og sveitarfélgsins Rangárþings ytra. Á þinginu var lögð fram um 70 blaðsíðna skýrsla um starfsemi héraðssambandsins á liðnu ári. Í skýrslunni kemur fram að starfið var þróttmikið á árinu, bæði innan HSK og aðildarfélaga þess. Rekstur sambandsins gekk vel á síðasta ári og var hagnaður meiri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir, en hann var kr. 242.911 kr. Á þinginu var samþykkt að veita Golfklúbbnum Þverá og Hnefaleikafélagi Suðurlands aðild að Héraðssambandinu Skarphéðni og eru aðildarfélögin nú orðin 53. Segja má að tillaga Umf. Selfoss um breytingu á lottóreglugerð hafi fengið mesta umfjöllun, en svo fór að frávísunartillaga var samþykkt með minnsta mun. Vigdís Guðjónsdóttir spjótkastari úr Ungmennafélagi Skeiðamanna var kosin Íþróttamaður HSK árið 2003, þriðja árið í röð. Í lok þings var kosin 8 manna stjórn og varastjórn sambandsins og 16 starfsnefndir HSK. Gísli Páll Pálsson úr Íþróttafélaginu Hamri í Hveragerði var endurkjörinn formaður sambandsins. Gísli Páll er einnig starfandi körfuboltadómari og á sæti í stjórn KKÍ. Þröstur Guðnason formaður Umf. Ingólfs gaf ekki kost á sér til endurkjörs í varastjórn. Helga Fjóla Guðnadóttir fyrrverandi formaður Hestamannafélagsins Geysis var kosin í hans stað. Stjórn HSK skipa: Formaður: Gísli Páll Pálsson - Íþr.f. Hamri Gjaldkeri: Bolli Gunnarsson - Umf. Baldri Ritari: Guðríður Aadnegard - Íþr.f. Hamri Varaformaður: Ragnar Sigurðsson - Umf. Þór Meðstjórnandi: Markús Ívarsson - Umf. Samhygð Varamenn: Yngvi Karl Jónsson - Íþr.f. Hamri Ingvar Hjálmarsson - Umf. Baldri Helga Fjóla Guðnadóttir - Hestam.f. Geysi Ársskýrsla HSK sem kom út á þinginu og þinggerð er hægt að nálgast á heimasíðu HSK, slóðin er www.hsk.is