8 mar. 2004A-landslið kvenna og B-landslið skipað styrkt með nokkrum erlendum leikmönnum áttust við í Seljaskóla á laugardaginn. Leiknum lauk með 88–49 sigri A-liðsins. Staðan eftir leikhlutum 16 – 16, 42 – 28, 62 – 38. A-liðið spilaði mjög vel og náðu allir 10 leikmennirnir að skora sem spiluðu leikinn. A-liðið spilaði hraðann bolta sem oft endaði með góðum sniðskotum. Annars léku allir mjög vel og spiluðu óeigingjarnan bolta þar sem hann gekk mjög vel á milli manna. B-liðið byrjaði mjög vel en náðu ekki að halda uppi hraðanum. Í liðið vantaði hjá þeim bæði útlendinginn hjá Grindavík og einnig Njarðvík og háði það liðinu töluvert. Þær réð því illa við stóru leikmennina hjá A-liðinu og þær voru þar að auki einungis átta. Hjá B- liðinu spilaði Rannveig Randversdóttir ágætlega og barðist vel og skoraði 12 stig og var næststigahæst, á eftir Casie Lowman, en hún skoraði 14 stig auk þess að vera frákastahæst með 7 fráköst. Hjá A-liðinu var Birna Valgarðsdóttir stigahæst með 15 stig og Erla Þorsteins næst stigahæst með 14 stig. Í liðið vantaði Hildi Sigurðar en hún var að þjálfa yngri flokk KR í Samkaupsmótinu og einni Önnu Maríu Sveinsdóttur sem var meidd á fæti. A-lið Nafn Stig Fráköst Stoðs. Signý 11 7 3 Svandís 2 6 Alda Leif 9 3 5 Marín 12 3 Erla Reynis. 5 4 3 Lovísa 6 3 3 Svava 5 1 2 Birna 15 2 Erla Þorsteins 14 5 Sólveig 9 3 B-lið Stig Fráköst Stoðs. Casie 14 7 2 Guðrún 5 1 Stella 4 2 Lilja 7 3 2 Rannveig 12 1 Svana 2 4 1 Katie 6 2 3 Kristrún 4 4