8 mar. 2004Efri röð frá vinstri: Predrag Bojovic þjálfari, Guðrún Ámundadóttir, Þóra Árnadóttir, Helena Sverrisdóttir og Bára Halfdánardóttir Neðri röð frá vinstri: Ösp Jóhannsdóttir, Hanna Halfdánardóttir, Hrefna Stefánsdóttir, Sara Ólafsdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og Svanhvít Skjaldardóttir. Haukar urðu bikarmeistarar í unglingaflokki kvenna eftir 25 stiga sigur á Grindavík í úrslitaleik,[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001897/18970301.htm[v-]67-42[slod-]. Haukar enduðu fjögurra ára sigurgöngu Keflavíkur í þessum flokki með því að slá þær út úr undanúrslitunum og Grindavíkurstelpur réðu ekkert við stöllur sínar úr Hafnarfirði í úrslitaleiknum. Helena Sverrisdóttir átti frábæran dag og var valin maður leiksins en Helena var bæði með tvöfalda tvennu og þrefalda tvennu í leiknum. Helena er ekki enn gengin upp í unglingaflokkinn (er í 10. flokki) en hún skoraði 32 stig, tók 23 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og varði 5 skot. Helena kom að 21 af 25 körfum Haukaliðsins í leiknum, skoraði körfur 10 sjálf og átti svo 11 stoðsendingar á félaga sína í liðinu. Pálína Gunnlaugsdóttir kom henni næst með 12 stig og 8 fráköst og Hrefna Stefánsdóttir skoraði 6 stig. Hjá Grindavík skoraði Ólöf Helga Pálsdóttir 15 stig og tók 8 fráköst, Jovana Lilja Stefánsdóttir var með 14 stig og hin 13 ára Íris Sverrisdóttir skoraði 7 stig á 14 mínútum. Þá skoraði Petrúnella Skúladóttir 5 stig auk þess að taka 12 fráköst og stela 4 boltum. Þetta er fyrsti bikarmeistaratitill Hauka í unglingaflokki kvenna í 21 ár en Haukar unnu hann einnig 1983.