8 mar. 2004Efri röð frá vinstri: Einar Árni Jóhannsson, Kristinn Gíslason, Jóhann Eggertsson, Hafsteinn Már Sigurðsson, Jósef William Pétursson, Anton Pálsson og Agnar Gunnarsson. Neðri röð frá vinstri: Ragnar Ólafsson, Rúnar Ingi Erlingsson, Elías Kristjánsson, Ólafur Valdimar Ólafsson, Friðrik Guðni Óskarsson og Hjörtur Hrafn Einarsson. Njarðvík vann 39 stiga sigur á Snæfelli, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001896/18960401.htm [v-]84-45[slod-] í bikarúrslitaleik 9. flokks karla og uppskar því loksins gull eftir að félagið þurfti að sætta sig við þrjú silfurverðlaun daginn áður. Nokkrir leikmanna Njarðvíkurliðsins höfðu verið með í báðum tapleikjum liðsins á laugardeginum. Snæfell hélt í við Njarðvík í upphafi leiks en í stöðunni 15-14 skoruðu Njarðvíkingar 14 stig í röð og voru komnir í 24 stiga forustu í hálfleik, 45-21. Ragnar Ólafsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 20 af 30 stigum í fyrri hálfleik þar af 16 þeirra í 30-7 endaspretti liðsins fyrir hlé. Ragnar var auk þess með 7 fráköst og 7 stoðsendingar og nýtti 14 af 22 skotum sínum í leiknum. Hjörtur Hrafn Einarsson átti mjög góðan alhliða leik, skoraði 19 stig, gaf 8 stoðsendingar, tók 7 fráköst og stal 6 boltum án þess að tapa einum einasta bolta og hann nýtti skotin sín líka 53%. Þá skoraði Elías Kristjánsson 14 stig, Friðrik Óskarsson gerði 10 og fyrirliðinn Rúnar Ingi Erlingsson var með 7 stig og 7 stoðsendingar. Hjá Snæfelli skoraði Björgvin Valentínusarson 10 stig og tók 15 fráköst að auki, Gylfi Rögnvaldsson var með 8 stig og Atli Rafn Hreinsson skoraði 6 stig, tók 6 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.