8 mar. 2004Logi Gunnarsson og félagar í Giessen töpuðu gegn Evrópurisanum í körfunni Bayer Leverkusen. Logi stóð sig vel í leiknum, setti niður 14 stig á þeim 20 mínútum sem hann spilaði. Logi nýtti færin sín vel í leiknum og setti 3 af 5 þristum, en þetta var í raun fyrsti alvöru leikur kappans frá því að hann meiddist snemma á tímabilinu. „Já þeir voru með frumkvæðið mest allan leikinn en við hengum í þeim, svo kláruðu þeir dæmið í fjórða leikhluta," sagði Logi. Nýverið þá skiptu þeir í Giessen um þjálfara og var því Logi í algeri óvissu um hvernig framhaldið yrði hjá honum. "Maður veit aldrei neitt þegar svona gerist hjá liðinu, en ég mjög sáttur við nýja þjálfarann finnst hann vera betri en hinn gamli. Hann er reyndar bara rétt að læra á liðið en ég tel að hann eigi eftir að gera góða hluti." sagði Logi að lokum. [v+]http://www.umfn.is/karfan/[v-]Af vef Njarðvíkinga[slod-].