10 mar. 2004Efri röð frá vinstri: Ágúst Jensson aðstoðarþjálfari, Hólmgrímur Hólmgrímsson, Róbert Æ Hrafnsson, Gústaf Gústafsson,Gissur Jón Helguson, Hjalti Friðriksson, Haraldur Valdimarsson, Sævaldur Bjarnason þjálfari (Katla Dögg Sævaldsdóttir) Neðri Röð frá vinstri: Kai Fletcher, Ólafur Stefánsson, Björn Júlíusson, Arnór Þrastarson, Baldur Eiríksson, Páll Fannar Helgason. Valsmenn urðu fyrstu bikarmeistarar dagsins þegar þeir unnu ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001895/18950301.htm[v-]52-45[slod-]. Valsmenn lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik sem liðið vann 35-24 og hitti þá úr öllum fimm þriggja stiga skotum sínum og átti 13 stoðsendingar á bak við 15 körfur. Maður leiksins var valinn fyrirliði liðsins, Hörður Hreiðarsson sem skoraði 10 stig, tók 20 fráköst, varði 6 skot og átti 5 stoðsendingar. Gissur Helguson átti einnig mjög góðan leik, skoraði 21 stig, tók 6 fráköst og átti 4 stoðsendingar. Gissur skoraði 17 stiga sinna í fyrri hálfleik þegar að hann hitti úr 7 af 12 skotum sínum og öllum þremur skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Páll Fannar Helgason (9 stig) og Gústaf Gústafsson (8 stig, 5 frák., 4 stoðs.) voru einnig atkvæðamiklir. Hjá Njarðvík skoraði Hjörtur Hrafn Einarsson 24 stig, tók 10 fráköst og átti 5 stoðsendingar, Ragnar Ólafsson var með 12 stig og Elías Kristjánsson bætti við 7 stigum.