11 mar. 2004Franska félagið Dijon, sem sló Keflvíkinga út í úrslitakeppni bikarkeppni Evrópu, er í góðum málum þessa dagana. Liðið sigraði nýlega í bikarkeppni átta efstu liða frönsku A-deildarinnar og liðið sigraði einnig í vesturdeild bikarkeppni Evrópu. Dijon mætti Le Mans í úrslitaleik frönsku "Semaine des Aces" bikarkeppninnar, sem er ekki ósvipum Hópbílabikarnum hjá okkur hér á Íslandi. Í 8-lið úrslitum, sem fram fóru á föstudegi, sigraði Dijon lið Villeurbanne 75-73 og daginn eftir lagði liðið Nancy 79-77. Í úrslitaleiknum á sunnudegi mætti Dijon liði Le Mans. Ekki blés byrlega fyrir Dijon í úrslitaleiknum því liðið var undir 60-53 þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. En Dijon gerði síðustu níu síðustu stigin í leiknum og tryggði sér sinn fyrsta stóra bikar í sögu félagsins með 62-60 sigri. Þess má geta að Le Mans er í 2. sæti frönsku 1. deildarinnar, á meðan Dijon er í 6. sæti. Eftir sigurinn á Keflavík í vesturdeild bikarkeppni Evrópu komst Dijon í úrlitaleik deildarinnar. Þar mætti félagið portúgalska félaginu Atletico Queluz. Dijon knúði fram sigur í framlengdum leik og skoraði 126 stig í leiknum, sem er það mesta sem nokkurt félag hefur skorað í öllum Evrópumótunum á vegum FIBA í ár. Framundan eru því fjögurra liða úrslit bikarkeppninnar með þátttöku sigurvegara deildanna fjögurra. Dijon mætir tyrkneska liðinu Tuborg Pilsener, sem sigraði í suðurdeildinni. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast, sigurvegari miðdeildarinnar, Mitteldeutscher frá Þýskalandi og Dynamo Moscow frá Rússlandi, sem sigraði í norðurdeildinni. Undanúrslitin fara fram 27. mars og úrslitaleikurinn daginn eftir.