11 mar. 2004Sjá má skemmtilega nýjung á heimasíðu Njarðvíkinga þar sem liðsmenn og stuðningsmenn félagsins leika í [v+]http://www.umfn.is/karfan/tvaugll.asp[v-]"auglýsingum"[slod-] þar sem hermt er eftir þekktum auglýsingastefum. ÍR-ingar eru með [v+]http://www.ir-karfa.is/index.php?sida=frettir&frett_nr=10789393[v-]viðhorfskönnun[slod-] á heimasíðu sinni þar sem könnuð eru viðhorf körfuboltaáhugamanna til launaþaksins. Á [v+]http://www.kkdi.is[v-]KKDÍ[slod-] er svo "stóra könnunin" í gangi en þar gefst netverjum tækifæri til að kjósa þá leikmenn sem þeim finnst hafa skarað framúr á keppnistímabilinu. Þórsarar á Akureyri eru svo með skemmtilegt [v+]http://www.thorsport.is/thor/frett.asp?action=lesa&id=783&grein=25&flokkur=[v-]viðtal[slod-] við Jakob og Helga hjá Birmingham Southern háskólanum.