11 mar. 2004Úrslitakeppni Intersport-deildarinnar, sú 21. í röðinni, hefst í kvöld með tveimur leikjum. Deildarmeistarar Snæfells taka á móti Hamri í Stykkishólmi og í Keflavík mætast heimamenn og Tindastóll. Leikirnir hefjast kl. 19:15. Snæfell tekur nú þátt í úrslitakeppninni í annað sinn. Liðið komst í keppnina árið 1999, en tapaði þá 2-0 gegn UMFN. Hamar hefur alltaf komist í úrslitakeppnina frá því félagið lék fyrst í efstu deild árið 2000 eða fjórum sinnum. Hins vegar hefur félaginu aldrei tekist að komast í undanúrslit. Hamar hefur unnið 2 leiki en tapað 8. Suðurnesjaliðin þrjú og KR hafa slegið Hamar út úr úrslitakeppninni. Keflavík tekur nú þátt í úrslitakeppninni í 19. sinn. Aðeins einu sinni hefur Keflavík mistekist að komast undanúrslit frá því 8-liða úrslitakeppni var tekin upp árið 1995. Það var árið 2000 þegar UMFG sló Keflavík út. Þá hefur félagið leikið 10 sinnum til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Keflavík á að baki 72 sigurleiki í úrslitakeppninni. Tindastóll hefur 7 sinnum áður tekið þátt í úrslitakeppninni. Félagið hefur tvívegis komist áfram í undanúrslit og einu sinni alla leið í úrslitaleikina. Það var árið 2001 er UMFN varð meistari með 3-1 sigri á Tindastól. Tindastóll á að baki 11 sigurleiki í úrslitakeppninni.