12 mar. 2004KKÍ og enska körfuknattleikssambandið hafa náð samkomulagi um að enska kvennalandsliðið komi hingað til lands og leiki þrjá landsleiki við Ísland. Leikirnir munu fara fram 28. 29. og 30. maí næstkomandi. Er þetta í annað sinn sem Ísland mætir Englandi í kvennakörfuknattleik. Fyrst léku þjóðirnar saman á alþjóðlegu móti í Luxemborg þar sem Englendingar unnu með 59 stigum gegn 44. Leikirnir eru hluti af undirbúningi landsliðsins fyrir 10 þjóða alþjóðlegt mót sem fram fer í Andorra í júlí, Promotion Cup og Norðurlandamót kvennalandsliða sem fram fer í Svíþjóð í ágúst.