12 mar. 2004Úrslitakeppni Interport-deildarinnar verður framhaldið í kvöld. Kl. 19:15 mætast UMFN - Haukar og UMFG - KR. Leikurinn í Grindavík verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Um helgina heldur úrslitakeppnin áfram, en þá verður leikið á heimvelli liðanna sem urðu í 5.-8. sæti. Ef grípa þarf til oddaleikja fara þeir fram nk. þriðjudagskvöld. Þá verður úrslitakeppni 1. deild karla framhaldið á morgun með leik Fjölnis og Vals kl. 18:oo í Dalhúsum. Einnig verður leikið til úrslita í minnibolta karla í Rimaskóla um helgina og 8. flokki kvenna í Stykkishólmi.