14 mar. 2004Deildarmeistarar Snæfells urðu fyrsta liðið til að tryggja sér þátttökurétt í undanúrslitum Intersportdeildarinnar þegar þeir unnu annan leikinn gegn Snæfelli, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001985/19850201.htm [v-]75-78[slod-], í Hveragerði í gær.Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2000 sem deildarmeistararnir klára einvígið í átta liða úrslitum í tveimur leikjum. Tindastóll og Keflavík þurfa hinsvegar að spila úrslitaleik um sætið í undanúrslitum í oddaleik í Keflavík á þriðjudag eftir að Tindastóll vann annan leikinn, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001985/19850202.htm [v-]89-86[slod-], á Sauðárkróki. Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells skoraði 16 stig og tók 18 fráköst gegn Hamri í Hveragerði í gær og var besti leikmaður einvígisins samkvæmt tölfræðinni en hans framlög í þessum tveimur leikjum voru upp á framlagsstig. Hlynur skoraði 14,5 stig, tók 18 fráköst og stal 3 boltum að meðaltali auk þess sem að hann nýtti skotin sín 58,5%. Hlynur hafði betur gegn félaga sínum Dondrell Whitmore en sá hinn samin skoraði 24 stig að meðaltali í leikjunum tveimur og var með 63% skotnýtingu. Hæsta framlagið í einvígi Snæfells og Hamars: 28,0 Hlynur Bæringsson, Snæfelli 25,0 Dondrell Whitmore, Snæfelli 17,0 Edmund Dotson, Snæfelli 14,5 Svavar Páll Pálsson, Hamar 12,5 Marvin Valdimarsson, Hamar