16 mar. 2004Fjölnir tryggði sér í kvöld sæti í Intersportdeildinni á næsta ári þegar liðið vann annan leikinn gegn Val með 26 stigum, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001987/19870202.htm[v-]79-105[slod-], í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla. Fjölnir vann fyrri leikinn á heimavelli sínum í Grafarvogi á laugardaginn, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001987/19870102.htm[v-]82-74[slod-], og bætti svo um betur á Hlíðarenda í kvöld. Fjölnir hefur aldrei leikið í efstu deild á Íslandi í boltaíþrótt en Valur og Fjölnir léku reyndar undir sameiginlegum merkjum í úrvalsdeildinni 2001 til 2002. Skallagrímur og Ármann/Þróttur leika annan leikinn í Laugardalshöllinni annað kvöld en Skallagrímur vann þar fyrsta leikinn í Borgarnesi, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001987/19870101.htm[v-]104-61[slod-], og fylgir Fjölni upp í Intersportdeildina vinni liðið annan leikinn í Höllinni. Þeir Jason Harden og Halldór Gunnar Jónsson, leikmenn Fjölnis, náðu því afreki að fara upp í úrvalsdeild annað árið í röð en í fyrra léku þeir með liði Þórs úr Þorlákshöfn sem tryggði sér þá sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn. Halldór Gunnar lék í byrjun tímabilsins með Selfossi, sem féll á dögunum niður í 2. deild, og því má segja að Halldór hafi á sama tímabil bæði farið upp úr og niður úr 1. deildinni. Tölfræði Þórsliðsins sem fór upp úr 1.deild karla í fyrra má finna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001739/TOR_T___.htm [v-]hér[slod-] og tölfræði Fjölnisliðsins má finna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001987/FJOLNIR_.htm [v-]hér[slod-]. Fjölnir verður 22. félagið til að spila í úrvalsdeild karla í 25 ára sögu deildarinnar en úrvalsdeildin var sett á laggirnar haustið 1978. Aðeins tvö félög, KR og Njarðvík, hafa verið með öll 25 tímabilin og fjögur af 21 félagi hafa aðeins verið í deildinni eitt tímabil. Félög í sögu úrvalsdeildar: Fyrsta tímabil úrvalsdeildar Valur 1978-79 KR 1978-79 Njarðvík 1978-79 ÍR 1978-79 ÍS 1978-79 Þór Ak. 1978-79 Þessi hafa bæst í hópinn síðan 7. Fram 1979-80 8. Ármann 1980-81 9. Keflavík 1982-83 10. Haukar 1983-84 11. Grindavík 1987-88 11. Breiðablik 1987-88 13. Tindastóll 1988-89 14. Reynir S. 1989-90 15. Snæfell 1990-91 16. Skallagrímur 1991-92 17. ÍA Akranes 1993-94 18. KFÍ 1996-97 19. Hamar 1999-2000 20. Stjarnan 2001-02 21. Þór Þ. 2003-04 22. Fjölnir 2004-05