16 mar. 2004[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001802/SKALLAGR.htm[v-]Skallagrímur[slod-] tryggði sér sæti í Intersportdeildinni að ári eftir sigur á Ármanni/Þrótti í kvöld, 85-82. Þar með er Skallagrímur aftur kominn á meðal þeirra bestu eftir eitt ár í 1. deildinni, en Skallagrímur kom fyrst í Úrvalsdeild tímabilið 1991-92 og hefur leikið þar síðan ef frá er talinn veturinn í vetur.