16 mar. 2004Áttaliða úrslitum Intersportdeildarinnar lauk í kvöld með sigrum Grindavíkur og Keflavíkur. Það verða því annars vegar Snæfell og Njarðvík sem eigast við í undanúrslitum og hins vegar Grindavík og Keflavík. Þetta er í fyrsta skipti sem Snæfell kemst í undan úrslit en tuttugasta skiptið sem Njarðvík er þar, átjánda skiptið hjá Keflavík og tólfta hjá Grindavík.