17 mar. 2004Aganefnd KKÍ úrskurðaði David Sanders leikmann Tindastóls í sex leikja bann á fundi sínum í gær. Bannið tekur gildi frá og með hádegi í dag, föstudag. Það var stjórn kknd. Keflavíkur sem sendi inn kæru á Sanders, þar sem fram kemur á myndbandsupptöku að hann sló Sverri Þór Sverrisson leikmann Keflavíkur í andlitið í leik liðanna á Sauðárkróki sl. laugardag. Þess má geta að aganefnd úrskurðaði þennan sama leikmann í tveggja leikja bann í síðasta mánuði. Þá voru þeir Berry Timmermans leikmaður HHF í 2. deild karla og Eldur Ólafsson leikmaður drengjaflokks KR úrskurðaðir í eins leiks bann. Þau bönn taka gildi frá og hádegi föstudaginn 19. mars.