19 mar. 2004Í kvöld mætast deildarmeistarar Snæfells og UMFN í fyrsta leik undanúrslita Intersport-deildarinnar. Á morgun hefst viðureign UMFG og Keflavíkur. Leikurinn í Stykkishólmi í kvöld hefst kl. 19:15. Hann verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sýnar-menn héldu í morgun áleiðis í Hólminn með sinn glæsilega upptökubíl. Alls munu um 15 manns koma að útsendingu Sýnar í kvöld. Þá er í kvöld á dagskrá oddaleikur Keflavíkur og UMFG í undanúrslitum 1. deildar kvenna. Leikurinn, sem fram fer í Keflavík, hefst kl. 19:15. Um helgina verður leikið til úrslita í 7. flokki karla í Rimaskóla og 7. flokki kvenna í Keflavík.