22 mar. 2004Úrslitakeppni bandarísku háskóladeildarinnar er hafin. Mikið er um að vera í Bandaríkjunum í tengslum við keppnina sem haldin er á fjórum stöðum í landinu, St. Louis, East Rutherford, Phoenix og Atlanta. Alls eru það 64 skólar sem mæta til leiks á hverjum stað. Stóru skólarnir, sem raðað er númer eitt í hverjum riðli, Duke, Kentucky, Stanford og St. Josephs unnu allir auðvelda sigra á andstæðingum sínum í 1. umferðinni. Þess má geta að Birmingham Southern, skóli þeirr Jakobs Sigurðarsonar og Helga Margeirssonar sem sigraði í Big South-deild 1. deildarinnar, er ekki með í úrslitakeppninni. Ástæðan er sú að skólinn fékk nýlega sæti í 1. deild og er enn á nokkurs konar reynslutíma í deildinni, þrátt fyrir að vera þar fullgildur þátttakandi. Nánar er hægt að fylgjast með gangi mála í "March Madness" [v+]http://www.ncaasports.com/basketball/mens/scoreboard/madness/20040318[v-]á vef NCAA[slod-].