25 mar. 2004Úrslitakeppni 2. deild karla fer fram á suðurlandi um næstu helgi. Í Vík fer fram [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001988.htm[v-]A-riðillinn[slod-], en í honum eru Drangur, HK, Hörður og Reynir S. í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001989.htm[v-]B- riðlinum[slod-] sem fram fer á Kirkjubæjarklaustri leika ÍA, ÍV, Grundarfj./Reynir H. og Dalvík. Keppnin hefst kl. 19:00 annað kvöld með riðlakeppni. Henni líkur síðdegis á laugardag. Á sunnudagsmorgun verða [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001990.htm[v-]undanúrslit og leikið um 7. sætið og 5. sætið[slod-]. Síðdegis verður síðan leikurinn um 3. sætið og keppninni líkur með úrslitaleik í Vík kl. 16:00. Liðin sem verða í tveimur efstu sætum keppninnar færast upp í 1. deild að ári. Mikil tilhlökkun ríkir á báðum þessum stöðum og hefur undirbúningur staðið yfir í nokkra mánuði. Hótel og veitingastaðir á svæðinu hafa sent þátttökuliðunum tilboð í mat og gistingu og gert er ráð fyrir að mikil stemmning verði á suðurlandi á meðan á keppninni stendur. Á Kirkjubæjarklaustri er glænýtt íþróttahús sem ekki hefur áður verið notað fyrir leiki á Íslandsmóti. Í Vík er einnig nýtt íþróttahús, en það var tekið í notkun sl. haust. Mikill hugur er í heimamönnum að standa vel að framkvæmd keppninnar og ekki síður að þeirra lið, Drangur, velgi andstæðingum sínum vel undir uggum.